Premium smárúturnar eru hagkvæmasta þjónustuleiðin ef þú vilt spara tíma og komast með fljótlegum hætti á milli Keflavíkurflugvallar og gististaðar í Reykjavík. Í hverri rútu eru einungis 8 sæti svo við mælum með að bóka tímanlega til að tryggja þér sæti.
Airport Direct Premium er fljótlegasta og einfaldasta þjónustuleiðin til að komast til og frá Keflavíkurflugvelli með hagkvæmum hætti. Ef þú velur Premium þá spararðu 30-45 mínútur í samanburði við hefðbundnar rútuferðir því þú ferð beint frá gististað til Keflavíkur án þess að þurfa að skipta um rútu. Þar sem það eru færri farþegar um borð í sérhönnuðu smárútunum okkar þá fækkar stoppunum á leiðinni til Keflavíkurflugvallar. Með þeim hætti getum við boðið upp á fljótlega og einfalda þjónustu sem er alltaf á áætlun.
Brottfarir frá Reykjavík
Við sækjum farþega á hótel, gistiheimili og beint heim að dyrum í ákveðnum póstnúmerum miðsvæðis í Reykjavík. Nánari upplýsingar um hvert við sækjum farþega má nálgast hér. Þegar búið er að sækja alla bókaða farþega er keyrt beint til Keflavíkurflugvallar.
Gott að hafa í huga
Afhverju að bóka hjá okkur?
Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og jákvæða upplifun viðskiptavina. Ef þú þarft að afbóka, gera breytingar eða þarft aðstoð við að skipuleggja ferðalagið þitt geturðu treyst á að við verðum þér innan handar.